Fotbolti.net
10.07.22 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Handanovic verður áfram hjá Inter (Staðfest)

Handanovic verður áfram hjá Inter (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Inter er búið að staðfesta að slóvenski markvörðurinn Samir Handanovic er búinn að skrifa undir eins árs samning við félagið. Gamli samningurinn rann út um síðustu mánaðarmót.

Handanovic verður 38 ára gamall í vikunni og hefur verið aðalmarkvörður Inter síðasta áratug. Hann á 439 leiki að baki fyrir félagið og 81 fyrir Slóveníu þar sem hann hélt ungum Jan Oblak úr byrjunarliðinu í þrjú ár.

Handanovic hefur varla misst af leik með Inter á síðustu tíu árum en núna mun hann deila markmannsstöðunni með Andre Onana sem er kominn á frjálsri sölu frá Ajax.

Hjá Inter hefur Handanovic unnið ítölsku deildina, ítalska bikarinn og endað í öðru sæti Evrópudeildarinnar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.