Omar Richards til Nottingham Forest (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Nottingham Forest er búið að staðfesta komu vinstri bakvarðarins Omar Richards frá FC Bayern fyrir 10 milljónir evra. Samkvæmt Fabrizio Romano er einnig 15% endursöluákvæði í samningnum þannig kaupverðið til Bayern gæti hækkað enn frekar.
Richards er 24 ára gamall og var lykilmaður í liði Reading áður en hann var fenginn yfir til Bayern á frjálsri sölu í fyrra.
Bakvörðurinn kom við sögu í 17 leikjum með Bayern og hefur núna verið seldur aftur til Englands.
Richards er sjötti leikmaðurinn til að ganga í raðir Forest í sumar eftir að félagið keypti Taiwo Awoniyi frá Union Berlin fyrir metfé. Varnarmennirnir Giulian Biancone og Moussa Niakhate eru komnir ásamt markvörðunum Dean Henderson og Ryan Hammond.
Forest vann umspil Championship deildarinnar í sumar og ætlar sér ekki að falla beint aftur niður um deild.
Welcome to Nottingham Forest, Omar Richards ❤️
— Nottingham Forest FC (@NFFC) July 10, 2022
🌳🔴 #NFFC | #PL
