Fotbolti.net
10.07.22 - 07:20
Ívan Guðjón Baldursson

Svidersky hafnaði Man Utd fyrir Almeria (Staðfest)

Svidersky hafnaði Man Utd fyrir Almeria (Staðfest)
Canon

Mynd: Youtube

Martin Svidersky hafnaði samningstilboði Manchester United og er farinn frá félaginu á frjálsri sölu.

Hann er búinn að skrifa undir fimm ára samning við Almeria sem vann spænsku B-deildina í fyrra og leikur því í efstu deild í vetur.

Svidersky er 19 ára miðjumaður frá Slóvakíu sem hefur verið hjá Man Utd í þrjú ár. Hann á 8 leiki að baki fyrir U21 landslið Slóvakíu og þykir mikið efni.

Hann er þreyttur á að spila í varaliðadeildinni með Rauðu djöflunum og vonast til að fá meiri spiltíma á Spáni.

Svidersky er varnartengiliður að upplagi en getur einnig spilað sem miðvörður eða vinstri bakvörður. 

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.