Davíð Smári: Ég er eiginlega bara alveg orðlaus
Auglýsing

Davíð Smári Lamude, þjálfari Njarðvíkur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég er eiginlega bara alveg orðlaus," sagði Davíð Smári Lamude, þjálfari Njarðvíkur, eftir 5-4 sigur gegn Grindavík í ótrúlegum leik í Lengjudeildinni í kvöld.
„Þetta er einhver skrítnasti leikur sem ég hef tekið þátt í."

Lestu um leikinn: Njarðvík 5 - 4 Grindavík
Fyrir leikinn voru þetta tvö bestu varnarlið deildarinnar að mætast en það var sóknarleikurinn sem var í aðalhlutverki í kvöld.
„Maður horfði á töfluna fyrir leik og hér voru að mætast tvö gríðarlega sterk varnarlið. Við gátum ekki varist í dag. Þetta var stórfurðulegt. Það mætti halda að einhver annar hafi verið að þjálfa þetta lið í dag hvað það varðar. Ég er ánægður með 'effortið' hjá liðinu. Það er erfitt að ná leiðandi stöðu og koma alltaf til baka. Það sýnir karakter í liðinu."
„Ég er ótrúlega ánægður með sigurinn. Við höfum verið hikandi þegar við þurfum að taka næsta skref og tengja saman sigra. Við tókum skrefið í dag," sagði Davíð.
Allt viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan þar sem Davíð Smári ræðir um þennan ótrúlega leik.