Fotbolti.net
26.08.26 - 17:42
Brynjar Ingi Erluson

Annar ítalskur landsliðsmaður á leið til Chelsea

Annar ítalskur landsliðsmaður á leið til Chelsea
Canon

Mynd: EPA

Chelsea er komið langt í viðræðum við Atalanta um ítalska landsliðsmiðvörðinn Honest Ahanor. Það er Fabrizio Romano sem greinir frá.
Félögin eru í góðu sambandi eftir félagaskipti Marco Palestra í sumar og nú gæti Ahanor orðið næsti leikmaður Atalanta til að ganga í raðir Chelsea.

Romano segir Chelsea hafa náð samkomulagi við varnarmanninn um kaup og kjör. Viðræður félaganna eru komnar langt á veg en kaupverðið gæti farið upp í 35 milljónir punda.

Ahanor, sem er 18 ára, lék 35 leiki með Atalanta á síðustu leiktíð og þreytti frumraun sína með ítalska landsliðinu í sumar. Áður lék hann með Genoa undir stjórn Patrick Vieira.

Náist samkomulag við Atalanta er líklegt að Chelsea láni Ahanor til franska félagsins Strasbourg í eitt tímabil.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.