Fotbolti.net
10.07.26 - 21:28
Snæbjört Pálsdóttir

Matti eftir enn eitt jafnteflið: Þreytandi en von á styrkingu

Auglýsing
Matti eftir enn eitt jafnteflið: Þreytandi en von á styrkingu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz

Valur og Stjarnan skildu jöfn, 1-1, á Hlíðarenda í kvöld í Bestu deild kvenna. Stjarnan komst yfir snemma leiks en Margrét Brynja Kristinsdóttir jafnaði metin fyrir Val í síðari hálfleik.

Matthías Guðmundsson, þjálfari Vals, var svekktur með niðurstöðuna eftir leik og þá sérstaklega frammistöðu liðsins í fyrri hálfleik.

„Svekktur. Já, svekktur. Valsliðið mætti ekki til leiks í 45 mínútur fannst mér. Mér fannst við slakar og ekki bara mér, þeim fannst það sjálfum. Við vorum svekktar með okkur í hálfleik og fannst við góðar í seinni hálfleik.“

Lestu um leikinn: Valur 1 - 1 Stjarnan

Valur hefur nú gert þrjú jafntefli í röð en í síðustu tveimur leikjum hefur liðið jafnað gegn sterkum liðum, gegn FH fyrir hlé og nú gegn Stjörnunni. Matthías segir liðið sýna gott hugarfar en að enn vanti aðeins upp á til að breyta jafnteflum í sigra.

„Mér finnst við bara hafa sýnt það móti að það er gott hugarfar í liðinu. Það kemur alltaf sama ræðan fram aftur og aftur en þetta eru allt jafnir leikir eða leikir sem við erum í. Við erum inni í hverju einasta verkefni sem við höfum tekið þátt í hingað til og það vantar bara eitthvað pínulítið til að ná að ýta þessu yfir línuna fyrir okkur.“

„Stigataflan sýnir að við erum að standa okkur vel að fá fá mörk á okkur, einhver þrjú mörk í seinustu sex leikjum eða eitthvað. En á sama tíma erum við ekki að skora mikið og þar erum við neðstar í deildinni að skora mörk eða eitthvað.“

„Við erum alltaf að banka og banka og banka en það er þreytandi að gera jafntefli. Það er kannski skárra að gera jafntefli en að tapa, að sjálfsögðu, en jafntefli gefur ótrúlega fá stig í knattspyrnu. Það er bara eitt víst.“

Félagaskiptaglugginn fer að opna og Valur hefur þegar fengið Ragnheiði Þórunni Jónsdóttur aftur inn í hópinn úr láni frá hollenska liðsinu Zwolle. Matthías staðfesti að fleiri styrking væri væntanleg.

„Ragnheiður kemur og er búin að vera að æfa með okkur alveg í x tíma og það er þvílíkur styrkur fyrir okkur. Svo ætlum við að taka aðra, eða það kemur önnur styrking sem verður örugglega komin í fjölmiðla eitthvað fljótlega.“

Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.