Fotbolti.net
10.07.26 - 20:04
Ívan Guðjón Baldursson

Tielemans meiddist í upphitun

Tielemans meiddist í upphitun
Canon

Mynd: EPA

Belgía og Spánn eru að keppa í 8-liða úrslitum heimsmeistaramótsins þessa stundina og er staðan jöfn, 1-1, í hálfleik.
Belgar byrjuðu leikinn án tveggja byrjunarliðsmanna á miðjunni sem eru að glíma við meiðsli. Amadou Onana varð fyrst fyrir alvarlegum meiðslum og svo meiddist Youri Tielemans í upphituninni fyrir leikinn gegn Spánverjum.

Tielemans er fyrirliði belgíska landsliðsins og algjör lykilmaður. Hann átti að vera í byrjunarliðinu gegn Spáni en Hans Vanaken tók sæti hans við hlið Nicolas Raskin í byrjunarliðinu.

Ekki er ljóst hversu alvarleg meiðsli Tielemans eru, en búist er við að um sé að ræða vöðvameiðsli.

Byrjunarlið Spánar og Belgíu: Doku og De Bruyne byrja
TENGT EFNI

Byrjunarlið Spánar og Belgíu: Doku og De Bruyne byrja

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.