10.08.13 - 20:50
Ívan Guðjón Baldursson
Gary Medel til Cardiff á metfé (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Cardiff City er búið að fá til sín miðjumanninn Gary Medel frá spænska félaginu Sevilla. Kaupverðið er óuppgefið en talið vera að minnsta kosti 13 milljónir evra.
Þetta er í þriðja sinn í sumar sem Cardiff setur nýtt met í fjárhæðum sem félagið notar í nýja leikmenn.

Fyrst í sumar var félagsmetið sett þegar Andreas Cornelius var keyptur til félagsins en síðar bætti félagið metið aftur til að fá Steven Caulker til sín frá Tottenham.
Medel, 26 ára frá Síle, skrifaði undir fjögurra ára samning við Cardiff eftir að hafa staðist læknisskoðun og fengið atvinnuleyfi.
Ljóst er því að aukin samkeppni er fyrir Aron Einar Gunnarsson á miðju Cardiff. Medel er þó varnarsinnaður miðjumaður sem getur og hefur einnig leikið sem miðvörður.
Medel á 76 leiki að baki með Sevilla í spænsku efstu deildinni og 51 landsleik að baki fyrir Síle.

Heimild: Sky Sports