Fotbolti.net
10.08.13 - 14:13
Ívan Guðjón Baldursson

Ignasi Miquel lánaður til Leicester (Staðfest)

Ignasi Miquel lánaður til Leicester (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Leicester City fær fjölhæfa spænska varnarmanninn Ignasi Miquel að láni frá Arsenal.

Miquel var gerður að fyrirliða varaliðs Arsenal fyrir fjórum árum en hefur síðan þá ekki náð að festa sig í sessi hjá aðalliði Arsenal.
Á síðasta tímabili var hann aðallega notaður í deildabikarsleiki og spilaði aðeins einn leik í deildinni.

Miquel verður hjá Leicester út tímabilið en er þó með ákvæði í samningnum um að snúa aftur til Arsenal í janúar sé viljinn til staðar.

Heimild: ISP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.