Fotbolti.net
10.08.13 - 15:43
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Rolando lánaður til Inter (Staðfest)

Rolando lánaður til Inter (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Lið á borð við Everton og Newcastle missa af Rolando sem er kominn til Inter á lánssamning.

Rolando er 27 ára varnarmaður Portúgalsmeistara Porto sem lið vítt og breytt um Evrópu hafa sýnt áhuga.
Verðmiði Rolando er talinn vera um fimm milljónir evra en Inter tókst að fá hann að láni.

Rolando var síðasta tímabil hjá Napoli þar sem hann spilaði aðeins sjö leiki í deild og tvo í Evrópudeildinni.

Rolando stóðst læknisskoðun hjá Inter og nú er búið að staðfesta komu hans. Talið er að í samningnum sé ákvæði sem Inter getur nýtt sér til að kaupa leikmanninn næsta sumar.

Heimild: Football Italia

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.