Fotbolti.net
10.08.14 - 12:30
Grímur Már Þórólfsson

Afellay á láni til Olympiakos (Staðfest)

Ibrahim Afellay

Ibrahim Afellay

Canon

Mynd: Getty Images

Barcelona hefur lánað hollenska vængmanninn Ibrahim Afellay til Olympiakos út tímabilið.

Hinn 28 ára gamli hollendingur kom til Barcelona árið 2010 en hefur átt erfitt uppdráttar á Nou Camp, meðal annars vegna meiðsla.

Hann var lánaður til Schalke tímabilið 2012/2013 og spilaði 10 leiki áður en að hann meiddist. Á síðasta tímabili var hann svo í leikmannahóp Barcelona en spilaði einungis tvo leiki.
Þá á hann 44 landsleiki að baki fyrir Hollendinga en samningur hans við Barcelona rennur út næsta tímabil.

Olympiakos hafa verið öflugir á leikmannamarkaðinum í sumar en þeir hafa fengið leikmenn á borð við; Eric Abidal, Pajtim Kasami, Alberto Botía, Kostas Fortounis, Mathieu Dossevi og núna Ibrahim Afellay.

Heimild: Soccernet

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.