Fotbolti.net
10.08.20 - 14:30
Magnús Már Einarsson

Þrjú félög undirbúa tilboð í Maitland-Niles

Þrjú félög undirbúa tilboð í Maitland-Niles
Canon

Mynd: Getty Images

Tvö félög í ensku úrvalsdeildinni og eitt í þýsku úrvalsdeildinni eru að undirbúa tilboð í Ainsley Maitland-Niles, leikmann Arsenal, samkvæmt frétt Sky.

Félögin hafa ekki verið nafngreind en á dögunum var Maitland-Niles orðaður við Tottenham.

Hinn 22 ára gamli Maitland-Niles byrjaði einungis einn leik hjá Arsenal eftir að fótboltinn fór aftur af stað eftir hlé vegna kórónaveirunnar.

Arsenal vill selja leikmenn til að fá pening sem hægt er að nota í nýja leikmenn.
Maitland-Niles er því líklega á förum en hann getur bæði spilað á miðjunni og í vörninni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.