10.08.21 - 18:31
Ívan Guðjón Baldursson
Adam Armstrong til Southampton (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Southampton er búið að staðfesta komu Adam Armstrong til félagsins frá Blackburn.
Armstrong er 24 ára sóknarmaður sem þótti gífurlega mikið efni á yngri árum og skoraði 31 mark í 54 leikjum fyrir yngri landslið Englands, þar á meðal 7 í 13 fyrir U20.
Hann sprakk út á síðustu leiktíð hjá Blackburn og skoraði 28 mörk í 40 leikjum í Championship deildinni.
Southampton greiðir um 15 milljónir punda fyrir sóknarmanninn sem gerir fimm ára samning við félagið og á að leysa markavélina Danny Ings af hólmi.
Southampton endaði í 15. sæti á síðasta úrvalsdeildartímabili, með 43 stig.

Introducing #SaintsFC's newest addition, @AdamArma9! ✍️ pic.twitter.com/k230cYWEk7
— Southampton FC (@SouthamptonFC) August 10, 2021