Fotbolti.net
10.08.21 - 18:45
Ívan Guðjón Baldursson

Brentford kaupir Wissa (Staðfest)

Brentford kaupir Wissa (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Nýliðar Brentford eru að styrkja hópinn sinn fyrir komandi átök í ensku úrvalsdeildinni og hefur Thomas Frank, stjóri félagsins, mikla trú á hinum 24 ára gamla Yoane Wissa.
Wissa er snöggur framherji sem gerir fjögurra ára samning við Brentford. Hann skoraði 10 mörk og lagði 5 upp í frönsku deildinni á síðustu leiktíð og á tvo leiki að baki fyrir landslið Kongó.

„Wissa er flottur leikmaður sem getur leyst margar stöður. Hann hefur þennan kraft og hraða sem þarf til að skapa hættu og er góður að taka menn á. Hann er góður að pressa, hann þarf að læra inn á okkar leikstíl en hentar mjög vel í pressukerfið," sagði Frank.

„Ég veit að hann mun hjálpa liðinu mikið. Þetta er góður strákur með flottan persónuleika og það er líka mjög mikilvægt til að halda réttum anda í hópnum."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.