Fotbolti.net
10.08.21 - 15:52
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalska deildin

Hauge til Eintracht Frankfurt (Staðfest)

Hauge til Eintracht Frankfurt (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Norðmaðurinn Jens Petter Hauge er genginn í raðir Eintracht Frankfurt í Þýskalandi frá AC Milan.
Hann fer á láni fyrst um sinn en Frankfurt þarf svo að kaupa hann þegar lánssamningurinn endar.

Þessi 21 árs gamli kantmaður yfirgaf norska meistaraliðið Bodö/Glimt í október á síðasta ári og samdi þá við stórlið AC Milan til fimm ára.

Hann kom við sögu í 24 leikjum á sínu fyrsta tímabili með Milan og skoraði í þeim fimm mörk.

Núna er hann á förum til Þýskalands og mun hann spila í deild þeirra bestu þar í landi á komandi tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.