10.08.21 - 09:30
Elvar Geir Magnússon
John Stones skrifaði undir fimm ára samning við Man City (Staðfest)

John Stones er ekki á förum.

Mynd: Getty Images

John Stones er ekki á förum.

Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn John Stones hefur skrifað undir nýjan samning við Manchester City til fimm ára.
Þessi 27 ára leikmaður átti fantagott tímabil með City þegar liðið varð Englandsmeistari á síðasta tímabili. Þá var hann hluti af enska landsliðinu sem komst í úrslitaleik EM alls staðar í sumar.

Einhverjar vangaveltur voru í gangu um hvort Stones myndi yfirgefa City eftir að hafa lent fyrir aftan Aymeric Laporte og Ruben Dias í goggunarröðinni.
Fyrri samningur hans átti að renna út á næsta ári en nú er hann bundinn félaginu til 2026.
Stones hefur spilað 168 leiki fyrir City síðan hann var keyptur frá Everton í ágúst 2016. Hann hefur unnið alla mögulega titla innanlands með þeim ljósbláu.
Á heimasíðu City segist Stones elska að vera hluti af liði City, hann gæti ekki verið ánægðari og það væri algjör draumur að vinna með Pep Guardiola.