Fotbolti.net
10.08.21 - 13:46
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Lionel Messi til PSG (Staðfest)

Farinn til Parísar.

Farinn til Parísar.

Canon

Mynd: Getty Images

Franska stórliðið Paris Saint-Germain hefur staðfest komu argentínska snillingsins Lionel Messi til félagsins.
Messi, sem er 34 ára, er af mörgum talinn besti fótboltamaður allra tíma.

Hann hefur allan sinn feril spilað með Barcelona en mun klæaðast annarri treyju á komandi tímabili, treyju PSG.

Messi skrifar undir tveggja ára samning við PSG. Vegna fjárhagsvandamála Barcelona gat félagið ekki gert nýjan samning við argentínsku stórstjörnuna sem táraðist á fréttamannafundi á sunnudag þegar hann kvaddi Barcelona.

Messi hefur unnið Ballon D’Or gullknöttinn sex sinnum. Í París mun hann spila með ofurstjörnunum Neymar og Kylian Mbappe.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.