Fotbolti.net
10.08.21 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson

Messi ekki til PSG eftir allt saman? - Fundaði með Barcelona í nótt

Lionel Messi átti erfitt með að kveðja á dögunum

Lionel Messi átti erfitt með að kveðja á dögunum

Canon

Mynd: Getty Images

Argentínski snillingurinn Lionel Messi kvaddi Barcelona á dögunum með tárin í augunum á blaðamannafundi og staðfesti félagið þá að hann væri á förum en spænski miðillinn La Porteria greindi frá því að Messi hefði fundað með Börsungum í nótt.
Ekki er öll von úti fyrir Barcelona. La Porteria segir frá því að Messi hafi fundað með Barcelona klukkan 2 í nótt.

Barcelona hafi þar lagt fram samningstilboð fyrir Messi. RAC1, einn stærsti miðillinn á Spáni, staðfestir einnig að Barcelona hafi fundað með leikmanninum. Fleiri fjölmiðlar á Spáni hafa tekið undir þessar fregnir.

Messi hefur verið í viðræðum við franska félagið Paris Saint-Germain síðustu daga og hafa allir helstu miðlar greint frá því að hann fari til Frakklands á næstu dögum og skrifi undir tveggja ára samning við félagið.

Það er þó ekki hægt að útiloka Barcelona og er allt opið eins og staðan er núna. Ferran Reverter, framkvæmdastjóri Barcelona, er aðalmaðurinn á bakvið viðræðurnar við Messi.

Ekki er vitað hvert samningstilboðið var og hefur verið rætt að Barcelona á ekki möguleika á að halda Messi. Samkvæmt reglum spænsku deildarinnar þá fær hann að minnsta kosti helming af laununum sem hann var með í síðasta samning og gæti því félagið ekki skráð hann.

Við flytjum frekari fréttir af stöðu mála þegar hlutirnir skýrast. Þá virðist Barcelona gefa vísbendingu um að Messi verði áfram hjá félaginu með myndbandi á Twitter en það má sjá hér fyrir neðan.

Messi vill vera áfram hjá Barcelona og það er enn möguleiki

Messi vill vera áfram hjá Barcelona og það er enn möguleiki

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.