Fotbolti.net
10.08.21 - 14:36
Elvar Geir Magnússon
Ítalska deildin

Nainggolan riftir hjá Inter (Staðfest) - Fer til Cagliari

Nainggolan riftir hjá Inter (Staðfest) - Fer til Cagliari
Canon

Mynd: Getty Images

Radja Nainggolan hefur komist að samkomulagi við Inter um riftun samnings síns og getur því formlega farið til Cagliari.

Eiginkona Nainggolan er frá Sardiníu og belgíski miðjumaðurinn hefur verið lánaður til Cagliari tvö síðustu tímabil.
Hann fékk einnig samningstilboð frá Besiktas í Tyrklandi en leiðin liggur enn og aftur til Cagliari.

Nainggolan, sem er 33 ára, gekk í raðir Inter frá Roma 2018 en náði ekki að sýna sömu frammistöðu og hann gerði í höfuðborginni.

Cagliari hafnaði í 16. sæti af 20 liðum ítölsku A-deildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.