Fotbolti.net
10.08.21 - 19:25
Ívan Guðjón Baldursson

Sol Bamba kominn til Middlesbrough (Staðfest)

Sol Bamba kominn til Middlesbrough (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Miðvörðurinn margreyndi Sol Bamba er búinn að gera eins árs samning við Middlesbrough og mun einnig vera partur af þjálfarateymi í akademíu félagsins.
Hinn 36 ára gamli Bamba, sem náði sér eftir krabbamein í maí, er búinn að gera eins árs samning við Championship félagið. Neil Warnock hefur miklar mætur á honum eftir tíma þeirra saman hjá Cardiff.

Bamba rann út á samningi hjá Cardiff í sumar en hann var síðast fastamaður í byrjunarliðinu tímabilið 2018-19 þegar Cardiff féll úr ensku úrvalsdeildinni.

„Til að byrja með vildi Sol bara fá að æfa með okkur og þegar við brugðum okkur frá hjálpaði hann til við þjálfun í akademíunni. Það hrifust allir svo mikið af honum að við urðum að ráða hann," útskýrði Warnock.

„Ég verð að viðurkenna að ég bjóst hvorki við að hann væri svona góður þjálfari né að hann væri ennþá svona öflugur innan vallar. Ég er hæstánægður að hafa samið við Sol."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.