10.08.21 - 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Southampton fær Broja frá Chelsea (Staðfest)

Armando Broja.

Mynd: Southampton

Armando Broja.

Mynd: Southampton
Southampton hefur krækt í sóknarmanninn Armando Broja á láni frá Chelsea út komandi tímabil.
Broja, sem hefur verið hjá Chelsea frá níu ára aldri, skoraði 11 mörk í 34 leikjum í hollensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð; þar var hann á láni hjá Vitesse.
Hann skrifaði undir nýjan fimm ára samning við Chelsea í sumar og er núna farinn aftur út á láni.
Borja fæddist í Englandi en spilar við landslið Albaníu. Hann á að baki sex A-landsleiki fyrir Albaníu.
Southampton er að vinna í því að fylla skarð Danny Ings, sem yfirgaf félagið í síðustu viku og fór til Aston Villa. Southampton er einnig að reyna að kaupa Adam Armstrong frá Blackburn.
Borja er væntanlega ekki eini sóknarmaðurinn sem er að yfirgefa herbúðir Chelsea. Tammy Abraham er sagður á leið til Ítalíu.