10.08.26 - 20:43
Jóhann Þór Hólmgrímsson
KR jafnaði 33 ára gamalt met ÍA


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR er 3-2 yfir gegn Fram í mögnuðum leik á Lambhagavellinum þegar þetta er skrifað.
KR komst í 3-0 forystu en Fram minnkaði muninn undir lok fyrri hálfleiks og minnkaði muninn enn frekar eftir klukkutíma leik.
KR komst í 3-0 forystu en Fram minnkaði muninn undir lok fyrri hálfleiks og minnkaði muninn enn frekar eftir klukkutíma leik.
Lestu um leikinn: Fram 2 - 5 KR
Eiður Gauti Sæbjörnsson skoraði þriðja mark KR en það var sögulegt. Þetta var 62. mark liðsins í deildinni í 18. umferð.
Liðið jafnaði met ÍA sem skoraði 62 mörk í deildinni árið 1993 í 18 leikja móti.
Liðið jafnaði met ÍA sem skoraði 62 mörk í deildinni árið 1993 í 18 leikja móti.
ÍA liðið 1993 er besta og sókndjarfasta lið Íslandsögunnar. Skoruðu ótrúleg 62 mörk í 18 leikja móti. Sögulegt. KR liðið 2026 var að skora mark nr. 62 í kvöld gegn Fram… í umferð nr 18 ???????? #BestaDeildin
— Áhugaverðar staðreyndir um íslenska knattspyrnu (@OReyndir) August 10, 2026
