Fotbolti.net
10.08.26 - 21:36
Víðir Sigurðsson

Víðir Sig: KR sló markametið - Skoraði 100. markið - Í fyrsta sinn á Akureyri í 36 ár

KR-ingar skoruðu fimm mörk gegn Fram og slógu markamet.

KR-ingar skoruðu fimm mörk gegn Fram og slógu markamet.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR-ingar slógu 33 ára gamalt markamet Skagamanna þegar 18. umferð Bestu deildar karla lauk í kvöld með sigri þeirra gegn Fram í Úlfarsárdal, 5-2.

Einn KR-inganna skoraði sitt 100. mark á ferlinum, Framarinn Kennie Chopart setti persónulegt met, Tryggvi Hrafn Haraldsson klifrar upp listann yfir markahæstu menn deildarinnar, staða Akureyrarliðanna er svo slæm að leita þarf 36 ára aftur í tímann til að finna samanburð, Þórsarar léku tímamótaleik og FH hefur ekki verið ósigrað jafnlengi síðan félagið varð síðast Íslandsmeistari.

Meira um þetta allt saman hér fyrir neðan.

Úrslitin í 18. umferð:
ÍA - Þór 2-0
Víkingur - ÍBV 2-2
KA - FH 0-1
Stjarnan - Keflavík 1-0
Breiðablik - Valur 1-3
Fram - KR 2-5

Staðan: Víkingur 45, KR 39, Fram 37, Breiðablik 29, Valur 22, ÍA 22, Keflavík 22, Stjarnan 21, ÍBV 17, FH 17, KA 15, Þór 15.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.