10.08.26 - 20:33
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ven de Ven framlengir við Tottenham (Staðfest)

Mynd: Tottenham

Mynd: Tottenham
Micky van de Ven hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning við Tottenham. Fyrri samningur hollenska varnarmannsins var til ársins 2029.
Barcelona og Liverpool sýndu honum áhuga í sumar en hann hefur ákveðið að vera áfram hjá Tottenham.
„Ég hef alltaf elskað Tottenham frá fyrsta degi sem ég steig hingað inn. Ég elska félagið og stuðningsmennina. Ég hef þroskast hér. Það er augljóst hvert félagið vill stefna og ég vil vera hluti af því. Ég er spenntur fyrir komandi tímum," sagði Van de Ven.
„Micky er einn besti miðvörður í Evrópu og er mikilvægur leikmaður fyrir okkur. Hann er með gæðin, hugarfarið og metnaðinn sem við viljum hafa hjá Tottenham. Ég er mjög ángður að hann hafi ákveðið að halda ferðalaginu sínu áfram með félaginu," sagði Roberto De Zerbi, stjóri liðsins.
„Við erum að byggja upp eitthvað sterkt hérna og leikmenn eins og Micky eru mikilvægur partur af þeirri framtíð. Hans ákvörðun að framlengja sýnir trúna sem hann hefur á því sem við erum að skapa saman."
Van de Ven er 25 ára en hann gekk til liðs við Tottenham frá Wolfsburg árið 2023. Hann hefur spilað 96 leiki og skorað tíu mörk.

“When something big happens in your life, you tell your family first.” pic.twitter.com/yYqdVRf3Zf
— Tottenham Hotspur (@SpursOfficial) August 10, 2026