Fotbolti.net
10.08.26 - 22:24
Jóhann Þór Hólmgrímsson

2. deild: Gummi Magg tryggði Víkingi Ó. sigur á Selfossi

2. deild: Gummi Magg tryggði Víkingi Ó. sigur á Selfossi
Canon

Mynd: Víkingur Ólafsvík

Víkingur Ó. 2 - 0 Selfoss
1-0 Ingvar Freyr Þorsteinsson ('32 )
2-0 Guðmundur Magnússon ('60 , víti)
Víkingur Ólafsvík fékk Selfoss í heimsókn í síðasta leik 16. umferðar í 2. deild í kvöld.

Ingvar Freyr Þorsteinsson kom Víkingi yfir eftir rúmlega hálftíma leik. Víkingur fékk síðan vítaspyrnu eftir klukkutíma leik. Guðmundur Magnússon skoraði úr henni og innsiglaði sigurinn.

Guðmundur gekk til liðs við Víking frá Njarðvík í síðasta mánuði. Þetta var fjórði leikurinn hans en hann hefur skorað í tveimur leikjum í röð.

Selfoss er í 2. sæti deildarinnar með 29 stig, sex stigum á eftir toppliði Hauka. Víkingur er í 5. sæti með 25 stig, jafn mörg stig og Fjölnir sem er í 4. sæti.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Haukar16+1935
2Selfoss16+529
3Kári16+1526
4Fjölnir16+825
5Víkingur Ó.16-225
6Kormákur/Hvöt16+1324
7Dalvík/Reynir16-121
8Magni16-1518
9KFA16+217
10Þróttur V.16-716
11Hvíti riddarinn16-916
12KFG16-2813
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.