Fotbolti.net
10.09.14 - 17:24
Magnús Már Einarsson

Gunnari Guðmunds sagt upp hjá Selfossi (Staðfest)

Klárar tímabilið

Gunnar Guðmundsson.

Gunnar Guðmundsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Selfoss hefur ákveðið að nýta sér uppsagnarákvæði í samningi sínum við Gunnar Guðmundsson þjálfara meistaraflokks karla.

Gunnar er á sínu öðru ári sem þjálfari Selfyssinga en hann þjálfaði áður HK lengi og síðan U17 ára landslið Íslands.

Selfoss er í 9. sæti í 1. deild með 26 stig þegar tvær umferðir eru eftir. Liðið á eftir að leika við KA á heimavelli á laugardag og Grindavík á útivelli viku síðar.
Yfirlýsing frá Selfossi
Stjórn knattspyrnudeildar Selfoss hefur ákveðið að nýta uppsagnarákvæði í samningi sínum við Gunnar Guðmundsson þjálfara meistaraflokks karla að loknu tímabilinu.

Gunnari eru þökkuð góð störf þau tvö ár sem hann hefur starfað fyrir félagið og mun hann stýra liðinu út tímabilið. Þetta gefur stjórn deildarinnar góðan tíma til að finna arftaka Gunnars fyrir næsta keppnistímabil.

Stjórn Knattspyrnudeildar Umf. Selfoss
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.