Fotbolti.net
10.09.14 - 20:30
Daníel Freyr Jónsson

Nicolas Anelka mættur til Indlands (Staðfest)

Nicolas Anelka.

Nicolas Anelka.

Canon

Mynd: Getty Images

Framherjinn Nicolas Anelka hefur skrifað undir samning við indverska félagið Mumbai FC og mun hann leika með félaginu fram til áramóta.
Þessi víðförli Frakki hefur verið án félags eftir að hafa yfirgefið WBA fyrr á þessu ári eftir að hafa valdið miklu uppnámi með umdeildum handabendingum er hann fagnaði marki.

Hann hafði undanfarið verið orðaður við ítalska félagið Fiorentina, en nú er ljóst að þessi 35 ára gamli leikmaður mun eyða haustinu á Indlandi.

Anelka hefur í gegnum árin leikið með fjölmörgum liðum. Má þar á meðal nefna PSG, Arsenal, Real Madrid, Liverpool, Manchester City, Chelsea og Juventus.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.