Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 10. september 2019 17:57
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarlið Frakklands gegn Andorra: Ikone fær sénsinn
Jonathan Ikone byrjar gegn Andorra
Jonathan Ikone byrjar gegn Andorra
Mynd: EPA
Didier Deschamps, þjálfari franska landsliðsins, ætlar að blása til sóknar gegn Andorra í undankeppni Evrópumótsins í kvöld en liðin eru með Íslandi í riðli.

Jonathan Ikone, leikmaður Lille, kom inná sem varamaður gegn Albaníu í 4-1 sigrinum og skoraði átta mínútum síðar en hann er í byrjunarliðinu í dag.

Fjórar breytingar eru á liðinu. Leo Dubois og Lucas Digne koma í bakverðina fyrir Benjamin Pavard og Lucas Hernandez.

Moussa Sissoko kemur á miðjuna fyrir Blaise Matuidi og þá kemur Ikone inn fyrir Thomas Lemar.

Byrjunarlið Frakklands gegn Andorra: Hugo Lloris (M) (F), Leo Dubois, Raphael Varane, Clement Lenglet, Lucas Digne, Corentin Tolisso, Moussa Sissoko, Jonathan Ikone, Antoine Griezmann, Kingsley Coman, Olivier Giroud.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner