Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 10. september 2019 10:00
Magnús Már Einarsson
Sancho í byrjunarliði Englands í kvöld
Mynd: Getty Images
Enskir fjölmiðlar greina frá því að Jadon Sancho, kantmaður Dortmund, fái tækifæri í byrjunarliðinu gegn Kosóvó í undankeppni EM í kvöld.

Hinn 19 ára gamli Sancho mun koma inn í liðið fyrir Marcus Rashford leikmann Manchester United.

Sancho spilar sinn sjöunda landsleik í kvöld en hann spilaði síðustu tuttugu mínúturnar í 4-0 sigrinum á Búlgaríu um helgina.

Sancho hefur byrjað tímabilið í Þýskalandi af krafti en hann hefur skorað tvö mörk og lagt upp þrjú með Dortmund.

Englendingar eru með fullt hús stiga á toppi riðilsins fyrir leikinn á Wembley í kvöld, með níu stig eftir þrjá leiki. Kosóvó er einnig taplaust með átta stig eftir fjóra leiki.
Athugasemdir
banner
banner
banner