Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fös 10. september 2021 23:17
Victor Pálsson
Vilhjálmur hættir með Breiðablik (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vilhjálmur Kári Haraldsson mun hætta með kvennalið Breiðabliks eftir tímabilið. Þetta staðfesti félagið í kvöld.

Vilhjálmur gefur ekki kost á sér í að halda áfram en samningur hans við félagið rennur út bráðlega.

Breiðablik tapaði baráttunni við Val um Íslandsmeistaratitilinn í ár og hafnar í öðru sæti deildarinnar.

Liðinu tókst þó að tryggja sér þátttökurétt í Meistaradeildinni og hefur einnig tryggt sér sæti í riðlakeppninni á þessu tímabili. Það er í fyrsta sinn sem íslenskt lið kemst í riðlakeppnina.

Tilkynning Breiðabliks:

Vilhjálmur hættir með Breiðablik eftir tímabilið

Vilhjálmur Kári Haraldsson verður ekki þjálfari kvennaliðs Breiðabliks á næsta tímabili. Vilhjálmur tilkynnti stjórn að hann gæfi ekki kost á sér áfram eftir að samningur hans við Breiðablik rennur út. Vilhjálmur er í öðru starfi sem hann vill geta einbeitt sér að.

Vilhjálmur Kári tók við Blikum í vetur eftir að Þorsteinn Halldórsson var ráðinn landsliðsþjálfari. Vilhjálmur var þá nýlega búinn að tilkynna að hann væri hættur í þjálfun en sló til þegar honum bauðst starfið. Liðið tók miklum breytingum milli ára en Vilhjálmur og þjálfarateymið allt hefur unnið mjög gott starf.

Blikastelpur enda í 2.sæti í deildinni og hafa þar með tryggt sér þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu á næsta keppnistímabili. Þá er liðið komið í úrslitaleik bikarsins og er fyrsta íslenska félagsliðið í sögunni til þess að komast í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Það eru því sannarlega fjölmörg spennandi verkefni framundan í haust og í vetur.

Stjórn knattspyrnudeildar vill þakka Vilhjálmi Kára fyrir gott samstarf á tímabilinu. Leit að nýjum þjálfara er þegar hafin.
Athugasemdir
banner
banner