10.10.13 - 12:01
Magnús Már Einarsson
Gunnlaugur Jónsson ráðinn þjálfari ÍA (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gunnlaugur Jónsson hefur verið ráðinn þjálfari ÍA en hann skrifaði undir samning við félagið á Akranesi nú rétt í þessu.
Gunnlaugur stýrði HK til sigurs í annarri deildinni í sumar en hann mun nú fara á heimaslóðir og stýra uppeldisfélagi sínu ÍA í fyrstu deildinni að ári.
Hann tekur við ÍA af Þorvaldi Örlygssyni sem stýrði skagamönnum síðari hluta móts í sumar eftir að Þórður Þórðarson hætti.
,,Ég fagna því að vera kominn á Jaðarsbakka að nýju. Ég var hér síðast árið 2005 en því miður hafa hlutirnir ekki æxlast nógu vel síðan þá. Við ætlum að byggja liðið upp til nokkurra ára og við byggjum vonandi upp lið sem getur spjarað sig í deild þeirra bestu,\" sagði Gunnlaugur við undirskriftina í dag.
Fréttatilkynning frá ÍA:
Knattspyrnufélag ÍA er sigursælasta félag landsins frá stofnun KSÍ. Undanfarin ár hefur frammistaða liðsins verið undir væntingum. Framundan er skemmtilegt verkefni og markmiðið er að koma ÍA aftur í fremstu röð, þar sem við teljum okkur eiga heima. Það verkefni krefst þolinmæði og þrautseigju.
Undanfarin 4 ár hefur átt sér stað mikið uppbyggingarstarf í yngri flokkum félagsins með markvissu uppeldis og afreksstarfi sem þegar er farið að skila árangri í auknum fjölda iðkenda. Við væntum þess að á næstu 3 árum muni þetta starf skila af sér ungum og efnilegum leikmönnum fyrir félagið.
Það er mjög mikilvægt að fá rétta manninn til starfa á þessum tímapunkti og erum við mjög heppin að hafa náð samkomulagi við Gulla um að taka að sér þetta verkefni. Við teljum mikilvægt að fá nýjar áherslur og aðferðir. Gulli á að baki farsælan feril sem leikmaður, er ungur þjálfari en býr yfir mikilli reynslu og hefur náð góðum árangri með þau lið sem hann hefur þjálfað, komið bæði Selfoss og HK upp um deild.
Gulli er sterkur karakter sem passar vel við það uppbyggingarstarf sem framundan er.
Við bjóðum Gulla velkominn á heimaslóðir á ný og höfum miklar væntingar til samstarfsins.
F.h.
Knattspyrnufélags ÍA,
Ingi Fannar Eiríksson
Formaður.
Sjá einnig:
Formaður meistaraflokksráðs HK: Eðlilegt framhald á ferli Gunnlaugs