Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 10. október 2021 12:56
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gulli Victor dró sig út - Arnar vildi halda honum
Icelandair
Guðlaugur Victor Pálsson.
Guðlaugur Victor Pálsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari, sagði frá því á fréttamannafundi rétt í þessu að Guðlaugur Victor Pálsson hefði dregið sig úr landsliðshópnum.

Það var sagt frá því í morgun á miðlum KSÍ að miðjumaðurinn hefði yfirgefið hópinn og haldið aftur til félagsliðs síns, Schalke 04 í Þýskalandi.

Guðlaugur Victor hefur byrjað á miðjunni í undanförnum leikjum en frammistaða hans hefur ekki verið upp á marga fiska.

„Guðlaugur Victor dróg sig út úr hópnum og taldi sig þurfa að fara til síns félags. Þá er hann ekki hér," sagði Arnar Þór.

Arnar sagði á fréttamannafundinum að hann hefði viljað halda Guðlaugi Victori í hópnum en leikmaðurinn hefði tekið þá ákvörðun um að fara. Það þyrfti að spyrja leikmanninn sjálfan frekar út í það af hverju hann væri að fara.

Ísland mætir Liechtenstein á morgun í undankeppni HM. Það er ekki mikið undir í leiknum þar sem hvorugt þessara liða er á leið á HM.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner