Fotbolti.net
10.10.21 - 13:35
Fótbolti.net

Líklegt byrjunarlið Íslands gegn Liechtenstein - Andrarnir inn?

Andri Fannar Baldursson.

Andri Fannar Baldursson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Ísland mætir Liechtenstein í undankeppni HM annað kvöld. Ari Freyr, Birkir Már og Ísak Bergmann eru í banni og Guðlaugur Victor ákvað að draga sig úr hópnum til að einbeita sér að félagsliði sínu.

Hvernig verður byrjunarlið Íslands annað kvöld?

Arnar Þór Viðarsson hefur sagst ætla að gefa sér tíma í að velja sér aðalmarkvörð og Patrik gæti fengið leikinn á morgun.

Brynjar Ingi Bjarnason er tæpur fyrir leikinn og Daníel Leó Grétarsson, sem kom af bekknum gegn Armeníu, mun væntanlega byrja ef Brynjar er ekki leikfær.


Andri Fannar Baldursson og Andri Lucas Guðjohnsen voru ekki með gegn Armenum en eru nú orðnir leikfærir og báðir í líklegu byrjunarliði að mati Fótbolta.net.

Leikur Íslands og Liechtenstein hefst 18:45 annað kvöld.
Andri Lucas og Albert.

Andri Lucas og Albert.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.