Arnór Ingvi: Gylfi klíndi einum upp í samskeytin
Auglýsing

Arnór Ingvi Traustason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnór Ingvi Traustason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Það er alltaf gaman að koma í landsliðið og sérstaklega í tvo heimaleiki. Þetta leggst mjög vel í mig," segir Arnór Ingvi Traustason, leikmaður Íslands, í samtali við Fótbolta.net.
Strákarnir eiga framundan leiki gegn Lúxemborg og Liechtenstein í undankeppni EM. Næsti leikur er gegn Lúxemborg á Laugardalsvelli á föstudagskvöld.

„Ég býst við tveimur krefjandi og mismunandi leikjum. Við töpuðum illa á móti Lúxemborg úti og við þurfum að hefna fyrir það. Við ætlum okkur að ná í góð úrslit hérna heima. Við byrjum á Lúxemborg og förum svo yfir á Liechtenstein."
Strákarnir töpuðu 3-1 gegn Lúxemborg og ætla sér að hefna fyrir það vonda tap.
„Alveg klárlega. Sem íþróttamaður með keppnisskap þá þolir maður ekki að tapa. Þeir voru betri en við úti og það er vond tilfinning. Manni langar sem fyrst að spila aftur til að reyna að vinna þá. Við ætlum okkur að gera það á föstudaginn. Við vitum hvað fór úrskeiðis, en Lúxemborg er vel spilandi lið með mikið sjálfstraust," segir Arnór.
Það hafa nokkrir reynslumiklir leikmenn komið inn í hópinn frá því síðast. Gylfi Þór Sigurðsson er mættur aftur og þá eru Aron Einar Gunnarsson og Sverrir Ingi Ingason einnig í hópnum eftir að hafa jafnað sig á meiðslum.
„Það er bara geggjað. Það gefur okkur mikið og fyrir þessa ungu stráka að fá umgangast þá. Þetta hjálpar okkur," segir Arnór.
Gylfi er mættur aftur eftir tæplega þriggja ára fjarveru.
„Það er alltaf gott að sjá Gylfa aftur. Hann gefur liðinu svo gífurlega mikið. Þetta eru jákvæðar fréttir. Hann klíndi einum upp í samskeytin, hann hefur engu gleymt."
Hægt er að sjá allt viðtalið í spilaranum hér fyrir ofan.