Fotbolti.net
10.10.26 - 21:15
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Besta deildin: Aron Sig jafnaði markametið í mikilvægum sigri

Besta deildin: Aron Sig jafnaði markametið í mikilvægum sigri
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fram 1 - 2 KR
0-1 Aron Sigurðarson ('8 )
1-1 Þorri Stefán Þorbjörnsson ('20 )
1-2 Arnór Ingvi Traustason ('57 )
Lestu um leikinn
KR vann dýrmætan sigur á Fram í Úlfarsárdalnum í kvöld. Aron Sigurðarson kom KR yfir með skoti sem breytti mikið um stefnu þar sem boltinn fór af Kennie Chopart.

Aron hefur skorað 21 mark í sumar og er búinn að jafna met Benoný Breka Andréssonar. Hann hefur tvo leiki til að bæta það.

Framarar sóttu hart að marki KR í kjölfarið og náðu að brjóta ísinn þegar Þorri Stefán Þorbjörnsson skoraði eftir sendingu frá Kristófer Konráðssyni.

Fram hélt áfram að sækja en staðan var áfram jöfn í hálfleik.

Í upphafi seinni hálfleik tók Kennie Chopart skot fyrir aftan miðju þar sem Arnar Freyr Ólafsson var langt út úr markinu. Hann náði að koma sér til baka og bjarga á síðustu stundu.

KR náði forystunni aftur þegar Aron átti fyrirgjöf og Arnór Ingvi Traustason réðst á boltann og stýrði honum í fjærhornið. Fram komst í dauðafæri strax í kjölfarið en Arnar Freyr varði frábærlega í tvígang.

Róbert Hauksson var síðan í góðri stöðu inn á teignum en skaut yfir. Framarar vildu fá vítaspyrnu í uppbótatíma þegar Már Ægisson féll í teignum en ekkert dæmt.

Nær komust heimamenn ekki og sterkur sigur KR staðreynd. KR er í 2. sæti með 50 stig, fjórum stigum á undan Fram sem er í 3. sæti.
Besta deildin: Aron Sig jafnaði markametið í mikilvægum sigri
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta deildin: Aron Sig jafnaði markametið í mikilvægum sigri
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta karla - Efri hluti

#LiðLmunStig
1Víkingur R.24+5059
2KR24+2847
3Fram24+1246
4Breiðablik24+133
5ÍA24-333
6Keflavík24-829
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.