Fotbolti.net
10.10.26 - 20:57
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalski boltinn

Ítalía: McTominay sneri aftur eftir hjartaaðgerð

Ítalía: McTominay sneri aftur eftir hjartaaðgerð
Canon

Mynd: EPA

Scott McTominay sneri aftur á völlinn í kvöld eftir að hafa gengist undir hjartaðgerð í síðasta mánuði.

Hann kom inn á eftir klukkutíma leik í öruggum sigri á Frosinone. Rasmus Höjlund fékk tækifæri til að koma Napoli yfir en klikkaði á vítaspyrnu.
Ítalía: Slæm snerting Mikaels varð að frábærri stoðsendingu
TENGT EFNI

Ítalía: Slæm snerting Mikaels varð að frábærri stoðsendingu

Napoli fékk hins vegar annað tækifæri því Lorenzoo Palmisani, markvörður Frosinone, fór af línunni áður en Höjlund sparkaði í boltann. Í þetta sinn fór Kevin De Bruyne á punktinn og kom Napoli yfir.

Noa Lang bætti öðru markinu við þegar hann setti boltann í opið markið af stuttu færi. Það var síðan De Bruyne sem innsiglaði sigurinn í blálokin.

Þá vann Inter sigur á Parma en liðið gerði út um leikinn í fyrri hálfleik. Petar Sucic kom Inter yfir þegar hann vann boltann inn í teig Parma eftir slakt útspark.

Hakan Calhanoglu bætti öðru markinu við úr vítaspyrnu og Marcus Thuram innsiglaði sigurinn.

Inter 3 - 0 Parma
1-0 Petar Sucic ('13 )
2-0 Hakan Calhanoglu ('18 , víti)
3-0 Marcus Thuram ('31 )

Napoli 3 - 0 Frosinone
0-0 Rasmus Hojlund ('27 , Misnotað víti)
1-0 Kevin De Bruyne ('29 , víti)
2-0 Noa Lang ('32 )
3-0 Kevin De Bruyne ('90 )
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.