10.11.13 - 21:00
Alexander Freyr Tamimi
Þorvaldur Örlygsson ráðinn þjálfari HK (Staðfest)

Þorvaldur Örlygsson við undirskriftina.

Mynd: HK

Þorvaldur Örlygsson við undirskriftina.

Mynd: HK
Þorvaldur Örlygsson hefur ráðinn þjálfari meistaraflokks karla hjá HK en hann skrifaði í kvöld undir þriggja ára samning við félagið. Þetta kom fram á heimasíðu HK.
Auk þess að þjálfa meistaraflokk mun Þorvaldur koma að uppbyggingu elstu flokka HK-inga, að því er kemur fram á vef félagsins.
Þorvaldur er 47 ára gamall og með UEFA-Pro þjálfaragráðu frá Englandi. Hann á langan feril að baki sem knattspyrnumaður og þjálfari, en hann lék 41 A-landsleik fyrir Ísland á árunum 1987 til 1995.
Hann gerðist þjálfari KA árið 2000 og fór þaðan til Fjarðabyggðar, þar sem hann þjálfaði liðið árin 2006 og 2007.
Þaðan fór Þorvaldur svo til Fram, þar sem hann var fram á mitt síðasta sumar. Þá tók hann við liði ÍA og stýrði því út leiktíðina, en liðið féll í 1. deild.
,,Við erum mjög ánægðir með að fá Þorvald sem þjálfara hjá HK. Með þessari ráðningu erum við að sýna að HK ætlar af fullum krafti í 1. deildina næsta keppnistímabil. Þorvaldur er reynslumikill þjálfari með mikinn metnað,\" sagði Þórir Bergsson, formaður meistaraflokksráðs karla hjá HK, við heimasíðu félagsins eftir undirskriftina.
,,Auk þess að þjálfa meistaraflokk verður eitt af verkefnum hans að koma að uppbyggingu elstu flokka félagsins sem er gífurlega mikilvægt. Í framhaldi af ráðningu Þorvaldar verður farið í leikmannamál og þau skoðuð á næstu dögum og vikum.\"