Fotbolti.net
10.11.15 - 16:05
Magnús Már Einarsson

Hrvoje Tokic áfram hjá Víkingi Ólafsvík (Staðfest)

Hrvoje Tokic áfram hjá Víkingi Ólafsvík (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Króatíski framherjinn Hrvoje Tokic hefur skrifað undir eins árs samning við Víking Ólafsvík.

Tokic kom til Víkings um mitt sumar og hjálpaði liðinu að landa sæti í Pepsi-deildinni.

Tokic skoraði tólf mörk í einungis átta leikjum og endaði sem markahæsti leikmaður Víkings í sumar ásamt Alfreð Má Hjaltalín.

Fleiri félög á Íslandi sýndu Tokic áhuga en hann hefur nú framlengt samninginn við Ólafsvíkinga. „Mér líður vel hér,\" sagði Tokic við Fótbolta.net undir lok sumars, sáttur með lífið í Ólafsvík.
Tokic kemur til landsins 1. febrúar næstkomandi til undirbúnings fyrir komandi tímabil.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.