10.11.15 - 23:22
Elvar Geir Magnússon
Jónas Guðni hættur í KR (Staðfest)
Fer hann heim í Keflavík?

Jónas Guðni Sævarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jónas Guðni Sævarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR og Jónas Guðni Sævarsson hafa komist að samkomulagi um starfslok Jónasar Guðna hjá KR. Þetta kemur fram í tilkynningu frá KR-ingum og Jónasi.
„KR þakkar Jónasi Guðna fyrir einstaklega farsælt og ánægjulegt samstarf, en Jónas Guðni kom til meistaraflokks KR haustið 2007 og hefur leikið með félaginu síðan þá, lengst af sem fyrirliði, utan þriggja tímabila þar sem hann lék sem atvinnumaður með Halmstad í Svíþjóð,\" segir í tilkynningunni.
Á þessum tíma vann hann þrjá bikarmeistaratitla og einn Íslandsmeistaratitil með KR.
„KR og Jónas Guðni óska hvor öðrum velfarnaðar og vonast til að fá tækifæri til að sameina krafta sína aftur sem fyrst.\"
Jónas er mjög vinsæll meðal stuðningsmanna KR en þessi 32 ára miðjumaður hefur verið sterklega orðaður við Keflavík, sitt uppeldisfélag. Jónas lék með meistaraflokki Keflavíkur 2002-2007 en árið 2006 varð hann bikarmeistari með félaginu.
Keflavík féll úr Pepsi-deildinni í sumar og vill fá Jónas heim til að hjálpa liðinu að endurheimta sæti sitt í deild þeirra bestu.

Heimild: Heimasíða KR