Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 10. nóvember 2019 07:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Firmino: Þetta er sex stiga leikur
Roberto Firmino.
Roberto Firmino.
Mynd: Getty Images
Það er heldur betur stórleikur á dagskrá ensku úrvalsdeildarinnar í dag þegar topplið Liverpool fær Englandsmeistara Manchester City í heimsókn á Anfield.

Leikurinn leggst nokkuð vel í Roberto Firmino leikmann Liverpool sem segir að um sex stiga leik sé að ræða.

„Það sem gerir viðureignina sérstaka er að tvö lið munu mætast sem eru að berjast um toppsætið. Við þurfum að fara varlega inn í þennan leik, við erum að spila við lið sem við þekkjum mjög vel og þeir þekkja okkur einnig mjög vel. Við þurfum að mæta einbeittir og tilbúnir til leiks ef við ætlum okkur að vinna."

„Það má með sanni segja að þetta sé sex stiga leikur, við þufum að gera okkar allra besta, verjast vel og spila góðan fótbolta," sagði Firmino að lokum.

Athugasemdir
banner
banner