Fotbolti.net
10.11.21 - 12:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Freyja Karín í Þrótt (Staðfest)

Freyja Karín í Þrótt (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Freyja Karín Þorvarðardóttir hefur gengið liðs við Þrótt og skrifar undir tveggja ára samning við félagið.

Freyja Karín er fædd árið 2004, hún er með efnilegri sóknarmönnum landsins og hefur undanfarin ár leikið með Fjarðabyggð í 2. deild. Þar hefur hún leikið 37 leiki í öllum keppnum og skorað 40 mörk.

Freyja var valin í U19 ára landsliðið í sumar og hún var af þjálfurum og fyrirliðum liða í 2. deild kvenna kjörin bæði besti og efnilegasti leikmaður deildarinnar. Hún var markahæst í deildinni með átján mörk.
„Þjálfarar Þróttar hafa fylgst með Freyju í langan tíma og við Þróttarar erum geysilega ánægð með að Freyja skuli kjósa að stíga næsta skref á sínum ferli með Þrótti," segir Kristján Kristjánsson formaður knd. Þróttar í tilkynningu félagsins. „Freyja er mjög spennandi leikmaður með mikla hæfileika og mikinn metnað og hún fellur mjög vel að okkar hugmyndum um uppbyggingu félagsins. Við hlökkum til að vinna með henni á komandi árum."

Þróttur endaði í 3. sæti Pepsi Max-deildarinnar í sumar og Fjarðab/Höttur/Leiknir endaði í efsta sæti 2. deildar og tryggði sér sæti í næstefstu deild.

Sjá einnig:
Hin hliðin - Freyja Karín
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.