10.11.21 - 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Tomasz Luba tekur við Árborg (Staðfest)

Mynd: Árborg

Mynd: Árborg
Tomasz Luba hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks karla hjá Knattspyrnufélagi Árborgar.
Þetta er fyrsta starf hans sem meistaraflokksþjálfari en Tomasz hefur þjálfað yngri flokka á Selfossi undanfarin ár, auk þess sem hann hefur verið í þjálfarateyminu hjá Knattspyrnuakademíu Íslands í Fjölbrautaskóla Suðurlands.
Tomasz, sem er 34 ára, lagði skóna á hilluna árið 2019 eftir þrálát meiðsli. Hann á að baki langan feril sem leikmaður, lék lengst af með Víkingi Ólafsvík hér á landi en einnig með Reyni Sandgerði og Selfossi.
Hann hóf sinn feril í Póllandi þar sem hann lék með LKS Lomza og Wisla Plock.
Árborg endaði í 2. sæti A-riðils 4. deildar í sumar og féll úr leik gegn Vængjum Júpíters í úrslitakeppninni.
Stjórn Knattspyrnufélags Árborgar bindur miklar vonir við ráðningu Tomaszar og býður hann velkominn til starfa.