Fotbolti.net
10.11.26 - 11:19
Kári Snorrason

Halli Hróðmars verður aðstoðarþjálfari KÍ Klaksvíkur

Frá Noregi til Færeyja.

Frá Noregi til Færeyja.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Haraldur Árni Hróðmarsson verður nýr aðstoðarþjálfari KÍ Klaksvíkur í Færeyjum.

Haraldur var síðast aðstoðarþjálfari Egersund í norsku B-deildinni en hann var látinn taka poka sinn frá liðinu í byrjun síðasta mánaðar. Þar áður var Haraldur þjálfari Grindavíkur.
Bolt.fo greinir frá tíðindunum en Haraldur mun koma til með að vera aðstoðarmaður fyrrum Framarans, Fróða Benjaminsen, sem lék með Fram árið 2004. Fróði tók við liðinu í haust.

Klaksvík endaði í 2. sæti deildarinnar á nýloknu tímabili, en félagið hefur unnið færeysku deildina fjórum sinnum á síðustu sex árum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.