Fotbolti.net
09.11.26 - 22:13
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Man Utd tekur ákvörðun um að reka Carrick

Michael Carrick.

Michael Carrick.

Canon

Mynd: EPA

Manchester United hefur tekið ákvörðun um að reka Michael Carrick úr starfi stjóra liðsins. Þetta herma heimildir The Athletic.

David Ornstein, sem er einn áreiðanlegasti fótboltafréttamaður heims, segir frá þessu í kvöld.
Ofurtölvan telur 22% líkur á að Man Utd falli
TENGT EFNI

Ofurtölvan telur 22% líkur á að Man Utd falli

Man Utd hefur átt skelfilegt tímabil og situr í fallsæti núna þegar landsleikjahlé er að ganga í garð.

Carrick tók við Man Utd fyrir um ári síðan og gerði frábæra hluti á síðasta tímabili. Hann stýrði United í Meistaradeildina en liðið endaði í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

The Athletic segir að United sé byrjað að ræða við menn til að taka við starfinu af Carrick.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.