09.11.26 - 14:44
Kári Snorrason
Aron Baldvin tekur við Fylki

Uppalinn Fylkismaður.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Heimir Guðjónsson tekinn við ÍA.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Uppalinn Fylkismaður.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Baldvin Þórðarson mun, samkvæmt heimildum Fótbolta.net, taka við sem nýr aðalþjálfari Fylkis. Aron er 31 árs gamall og verður þetta hans fyrsta aðalþjálfarastarf en hann hefur verið aðstoðarþjálfari Víkings síðustu ár.
Árbæingar hafa verið í þjálfaraleit eftir að Heimir Guðjónsson hætti sem þjálfari liðsins og tók við ÍA.
Árbæingar hafa verið í þjálfaraleit eftir að Heimir Guðjónsson hætti sem þjálfari liðsins og tók við ÍA.

TENGT EFNI
Útlit fyrir að Aron Baldvin taki við í Árbænum
Aron var nálægt því að taka við ÍBV síðasta vetur, en Víkingur og ÍBV náðu ekki saman. Aron er uppalinn Fylkismaður og þekkir því vel til í Árbænum.
Fylkir endaði í 3. sæti Lengjudeildarinnar á afstöðnu tímabili og tapaði í úrslitaleik umspilsins gegn Þrótti á Laugardalsvelli í haust.
Ólafur Ingi Skúlason, Sigurður Ragnar Eyjólfsson og Davíð Smári Lamude voru orðaðir við starfið. Samkvæmt heimildum hafnaði Ólafur tækifærinu að taka við uppeldisfélaginu.