Fotbolti.net
09.11.26 - 22:30
Ívan Guðjón Baldursson

Raúl tekinn við hjá Oviedo (Staðfest)

Raúl tekinn við hjá Oviedo (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Spænska goðsögnin Raúl González mun stýra Real Oviedo næstu árin eftir að hann samdi við félagið á dögunum og var kynntur sem nýr aðalþjálfari í dag.
Raúl er 49 ára gamall og stýrði varaliði Real Madrid frá 2019 til 2025. Síðan þá hefur hann verið orðaður við ýmis störf en ákvað að taka ekki við neinu tilboði fyrr en núna.

Oviedo leikur í næstefstu deild á Spáni eftir fall úr efstu deild á síðustu leiktíð. Liðið situr í níunda sæti með 21 stig eftir 13 umferðir, sem stjórnendum þykir ekki nægilega góður árangur. Stjórnin vill sjá Oviedo fara beint aftur upp í La Liga.

Raúl tekur við af Julián Calero sem var ráðinn í sumar og entist því tæpa fimm mánuði í þjálfarastarfinu.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.