Fotbolti.net
10.11.26 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson

Orri Steinn: Er að spila minn besta fótbolta á ferlinum

Orri Steinn: Er að spila minn besta fótbolta á ferlinum
Canon

Mynd: EPA

Eimskip
Orri Steinn Óskarsson landsliðsfyrirliði ræddi ýmislegt í viðtali við Fótbolta.net á La Finca æfingasvæðinu þar sem landsliðið heldur sig þessa dagana.
Orri tjáir sig um agamálið: Eitthvað sem hópurinn átti að taka á saman
TENGT EFNI

Orri tjáir sig um agamálið: Eitthvað sem hópurinn átti að taka á saman

Orri Steinn hefur verið í stuði með Real Sociedad og er búinn að skora fimm mörk í síðustu sex leikjum í öllum keppnum.

Viðtalið má sjá í heild hér neðar, en Orri byrjar að tala um Real Sociedad eftir rétt rúmlega 5 mínútur og 30 sekúndur af myndskeiðinu.

„Ég er að spila minn besta fótbolta á ferlinum, þetta er hæsta gæðastig sem er í boði í fótboltanum og stundum gerir maður sér ekki alveg grein fyrir því hvað er að gerast. Þetta gerist allt svo hratt, það eru bara leikir á þriggja daga fresti og maður reynir einhvern veginn bara að komast í gegnum næsta leik. Ég er mjög ánægður með liðið, okkur er að ganga vel og það hjálpar mér að því leyti að við erum að við erum að komast í góð færi. Síðan þarf ég auðvitað að nýta færin, en það er búið að ganga mjög vel," segir Orri um lífið sem leikmaður Real Sociedad. Hann segist vera mjög þakklátur fyrir að félagið hafi haldið trausti við sig þrátt fyrir mikil meiðslavandræði.

„Ég hef aldrei verið í betra standi líkamlega, ég er búinn að halda mér frá meiðslum mjög lengi með mikilli vinnu og fórn sem ég er mjög stoltur af. Síðasta tímabil var erfitt og það er óborganlegt að geta lagt sig 100% fram í hverjum einasta leik.

„Á hverju tímabili koma lágpunktar og hápunktar og ég hitti kannski á smá lágpunkt fyrir síðasta landsliðsverkefni. Eftir það er ég búinn að ná að stíga upp og bæta stöðuna mína í liðinu. Ég vonast til að halda þessu standi og reyna að festa mig í liðinu. Ég held að ég sé á góðri leið með það en þetta krefst þess að ég haldi áfram að spila vel og skora. Það er ekkert frítt byrjunarliðssæti hjá Real Sociedad, það er ekki í boði."


Ísland spilar við Búlgaríu og Lúxemborg í landsleikjahlénu.
Orri Steinn: Er að spila minn besta fótbolta á ferlinum
Canon

Mynd: KSÍ

Orri tjáir sig um agamálið: Eitthvað sem hópurinn átti að taka á saman

Beint frá Benidorm - Horfast í augu við mistökin

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.