Fotbolti.net
10.11.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Subway

Meistaradeild kvenna í dag - Risaslagir hjá Íslendingaliðum

Það eru fimm leikir á dagskrá í Meistaradeild kvenna í dag og í kvöld þar sem nokkur Íslendingalið mæta til leiks.
Hin 18 ára gamla Thelma Karen Pálmadóttir verður líklega á sínum stað í byrjunarliði sænsku meistaranna BK Häcken sem taka á móti enska stórveldinu Chelsea í dag.

Real Madrid spilar á sama tíma við Paris FC áður en Glódís Perla Viggósdóttir og stöllur í stórveldi FC Bayern heimsækja stórveldi Paris Saint-Germain til Frakklands.

Glódís Perla er lykilmaður og fyrirliði hjá Bayern en hefur verið utan hóps síðustu tvo leiki í röð vegna hnémeiðsla.

Þá taka Cecilía Rán Rúnarsdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir í ítalska stórveldinu Inter á móti Englandsmeisturum Manchester City á meðan AS Roma fær Servette í heimsókn frá Sviss.

Leikir dagsins
17:45 Hacken - Chelsea
17:45 Real Madrid - Paris FC
20:00 PSG - Bayern
20:00 Inter - Man City
20:00 Roma - Servette
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.