10.11.26 - 13:55
Kári Snorrason
Kristján Snær riftir við FH

Riftir við FH.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Riftir við FH.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristján Snær Frostason hefur samkvæmt heimildum Fótbolta.net rift samningi sínum við FH. Hann var samningsbundinn Fimleikafélaginu út tímabilið 2028 en er nú laus allra mála.
Kristján er 21 árs gamall hægri bakvörður og gekk hann í raðir FH síðasta vetur frá uppeldisfélaginu HK.
Kristján er 21 árs gamall hægri bakvörður og gekk hann í raðir FH síðasta vetur frá uppeldisfélaginu HK.
Hann lék átta leiki með FH í Bestu deildinni í sumar en hann hafði verið í stóru hlutverki með HK þar áður. Kristján á að baki 8 leik fyrir yngri landsliðin, fjóra fyrir U18 og fjóra fyrir U19.
Kristján er fjórði leikmaðurinn sem yfirgefur FH eftir tímabilið en þeir Grétar Snær Gunnarsson, Kristján Flóki Finnbogason og Arnór Borg Guðjohnsen voru allir með lausa samninga og ljóst að þeir verða ekki áfram.