10.11.26 - 12:31
Kári Snorrason
Draumur að taka við uppeldisfélaginu - „Horfi á Arnar sem læriföður minn“

Skrifaði undir þriggja ára samning við Fylki.

Mynd: Fylkir

Aron kom inn í meistaraflokksteymi Víkings árið 2022.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fylkir endaði í 3. sæti Lengjudeildarinnar og tapaði í úrslitaleik tímabilsins á afstöðnu tímabili.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Uppalinn Fylkismaður.

Aron Baldvin Þórðarson var tilkynntur fyrr í dag sem nýr aðalþjálfari Fylkis. Aron, sem er 31 árs gamall, hefur verið aðstoðarþjálfari Víkings undanfarin tvö tímabil en þar áður hafði hann verið í teymi liðsins.
Heimir Guðjónsson stýrði Fylki á afstöðnu tímabili en hann lét af störfum til þess að taka við ÍA. Aron Baldvin er uppalinn Fylkismaður og ræddi hann við miðla Fylkis í tilefni ráðningarinnar.

TENGT EFNI
Aron Baldvin kynntur hjá Fylki (Staðfest)
Draumur að rætast
„Þetta er bara draumur að rætast, það er ekkert flóknara en það. Ég ólst upp sem mikill Fylkismaður. Ég bjó erlendis fyrstu tíu, ellefu ár ævi minnar. Flyt síðan í Árbæinn og verð strax mikill Fylkismaður. Að fá núna tækifæri til að þjálfa uppeldisfélagið sitt eru mikil forréttindi og því fylgir mikið stolt. Það verður lagt allt í sölurnar,“ segir Aron í samtali við miðla Fylkis.
Arnar eins konar lærifaðir
Aron er 31 árs gamall sem gerir hann að yngsta aðalþjálfara í Bestu- og Lengjudeildinni. Hann segir Arnar Gunnlaugsson vera eins konar læriföður sinn.
„Þegar ég kem inn í teymið hjá Arnari Gunnlaugs í Víkinni fæ ég að sjá fótboltann úr allt öðru sjónarhorni en ég var vanur. Ég byrja að elska þá hugmyndafræði og hef mótað hana og þróað á minn hátt,“ segir Aron og var í kjölfarið spurður út í fótboltann sem búast má við að sjá í Árbænum á næsta tímabili.
„Þjálfaraskólinn minn er svolítið úr Víkinni. Ég horfi svolítið á Arnar Gunnlaugs sem læriföður minn. Síðan þróuðu Sölvi og Viktor Bjarki það áfram síðustu tvö ár. Undir stjórn Sölva gerðum við mjög vel. Þetta snýst um að vera góður á öllum sviðum leiksins.
Á móti hvaða andstæðingi sem er er þér alltaf þrýst niður, þarft að sækja og verjast úr föstum leikatriðum, vera með góðan strúktúr. Markmið okkar fyrir hvern og einn leik er að spila hann á okkar forsendum, að við séum liðið sem stýrir leiknum frá A til Ö.“
Vill koma inn með stöðugleika
Mikið rót hefur verið á þjálfaramálum Fylkis undanfarin ár. Á síðustu þremur tímabilum hefur liðið verið með fjóra þjálfara. Aðspurður um hvað hann getur komið með inn í Fylki hafandi verið í Víkingi segir Aron stöðugleika vera lykilinn að velgengni.
„Lykillinn að því að ná þessum stöðugleika er skýr hugmyndafræði. Þetta hefur gert það að verkum að Víkingur hefur náð að keppast um titla og oftar en ekki unnið þá síðustu ár. Skýr stefna og skýr hugmyndafræði með mikinn strúktúr er það sem ég ætla að koma með inn í Fylki,“ segir Aron að lokum.
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að neðan.